Sundur og Saman

Hlaðvarpið þar sem þú lærir að skapa besta samband sem þú getur ímyndað þér. Ertu með spurningu sem þú vilt fá svar við í hlaðvarpinu? Sendu mér línu! https://www.instagram.com/sundurogsaman/ https://sundurogsaman.is

Listen on:

  • Podbean App
  • Spotify

Episodes

6 days ago

Daginn eftir 11 ára brúðkaupsafmælið okkar settumst við niður og tókum upp þátt. 
Við förum yfir alla sambandssöguna okkar, hvað hefur breyst síðan við opnuðum sambandið og hvað kom okkur á óvart. 
Hvernig tökumst við á við afbrýðissemi?
Er lokað samband kannski aðeins falskt öryggi?
Vonandi svalar þetta hluta af forvitni ykkar um opin sambönd og gerir ykkur spennt að víkka sjóndeildarhringinn ykkar. 
 

Sunday Jul 07, 2024

What makes good sex? In this episode Marcel and I sit down again to talk about sex. 
We aim to answer the main question “what makes good sex" and also "what makes sex good"?
Spurningar sem við svörum í viðtalinu: 
Hvað gerir kynlíf gott?
Hvernig er kynlíf mismunandi með mismunandi mökum?
Er hægt að læra að finnast gott að láta sleikja sig? Hversu oft er eðlilegt?
Pressa frá maka?
Hvað með kynsjúkdóma þegar það eru fleiri makar?Látið mig vita hvað ykkur fannst við hlustunina í gegnum instagram:
https://www.instagram.com/sundurogsaman/  

Thursday Jun 20, 2024

"Love isn't always a two way street"
Hefurðu verið í þeirri stöðu að hafa meiri ást að gefa en maki getur tekið við? Og fundið jafnvel að maki hafi ekki nógu mikla ást að gefa fyrir þig? 
Í þessum þætti fer ég djúpt ofan í hvernig hjarta okkar getur haldið mismikilli ást, hvernig það getur vaxið og hversu eðlilegt það er að við séum ekki alltaf jöfn í getu og fólkið í kringum okkur. 
Fyrir öll ykkar sem viljið getað elskað meira, þetta er þáttur fyrir ykkur. 
 
Finna mitt ástartungumál - 5 Love Languages
Skoða Sundur og saman á instagram

Thursday Jun 13, 2024

Hvað gerir þú þegar þú veist þú þarft að fara út fyrir þægindarammann?
Drífir þú þig í því? Eða frestarðu því aftur og aftur af því að lífið er bara "of þægilegt" svona. 
Á endanum nær innsæið til þín og þægindin verða kæfandi! Í þessum þætti tala ég um hvað gerist þegar þú stígur út fyrir þægindarammann og hvaða vísbendingar segja þér að það sé kominn tími til. 
Fyrir konur sem vilja taka stökk með mér út fyrir þægindarammann á Spáni í lok júní - lesið meira hér Fullvalda retreat eða sendið mér skilaboð á instagram. 
Sundur og saman á instagram
Ert þú með spurningu eða ósk um umræðuefni fyrir þáttinn? Sendu mér línu!

Wednesday Jun 05, 2024

Er álit annarra að halda aftur af þér og koma í veg fyrir að þú takir ákvörðun fyrir þig? Hlustaðu á þennan þátt. Í þessum þætti fæ ég til mín Huldu Margréti Brynjarsdóttur, nána vinkonu, einkaþjálfara, yogakennara, móðir og margt fleira. 
Fylgið Huldu á instagram:@leid.ad.uppeldi
Sendið mér skilaboð á instagram @sundurogsaman:
Lestu meira um Fullvalda retreat 23. júní 2024
https://sundurogsaman.me/fullvaldaretreat 

Friday May 31, 2024

Í þessum þætti Sundur & Saman spjallaði Þórhildur við Hönnu Lilju, stofnanda GynaMedica um allt sem við kemur heilsu kvenna. Kynlöngun, kynheilsu, hormónahringinn, breytingaskeiðið, barneignir og kynsjúkdóma. 
Hvernig það er að vera kona, líðan kvenna og líðan í sambandi, upplifun af kynlífi og samfélagslega skekkju hvað varðar sambönd og kynlöngun í kringum barneignir og hvernig hormónar geta útskýrt margt af þessu. 
Njótið þess að hlusta!
Meira um GynaMedica:
https://www.instagram.com/gynamedica
https://www.gynamedica.is/
 
Sundur og Saman á instagram: 
https://www.instagram.com/sundurogsaman
Fullvalda Retreat 23. júní 2024:
https://sundurogsaman.me/fullvaldaretreat

Thursday May 23, 2024

Pælirðu stundum mikið í því hvort þú einhver klæðaburður sé of sexy? Eða hvort að einlægi áhugi þinn á manneskju sé óviðeigandi? Eða hvort einhver haldi að þú sért að reyna við sig þegar þú ert það ekki? Í þessum þætti fjalla ég um hvaða þættir stuðla að því að þú getir verið sexy - án þess að þurfa þess. Ég efast ekki um að eitthvað af þessu muni koma þér á óvart. Láttu mig vita hvað þú uppgötvaðir í komment eða í skilaboðum á instagram.
@sundurogsaman á Instagram
Frítt tjáningaform - Tjáðu þig um það sem skiptir máli, en slepptu restinni!
Áttaviti PDF handbók

Thursday May 16, 2024

Ef þú hefur áhyggjur af því að makinn þinn hafi ekki sömu áhugamál og þú, hlustaðu á þennan. 
Í þættinum fjalla ég um mismunandi félagslegar þarfir sem við höfum og hvernig við verðum að fá þeim uppfyllt úr mörgum ólíkum áttum. 
Lestu um Fullvalda kvennaretreatið (sem þú getur komið á) hér: https://sundurogsaman.me/fullvaldaretreat
Njótið vel, hlakka til að heyra frá ykkur á instagram: https://www.instagram.com/sundurogsaman/
 

Thursday May 09, 2024

Í þessum þætti fáið þið viðtal við Marcel kærastann minn. Bæði höfum við fetað ótroðnar leiðir í að skapa samböndin okkar innan polyamory og hér ræðum við vítt og breitt um það helsta sem hefur mótað breytingar og vöxt okkar í samböndum. Athugið að viðtalið er á ensku. Njótið vel!

Wednesday May 01, 2024

Loksins er hlaðvarp Sundur & Saman komið út!Hér svara ég spurningunni "Hvernig set ég sjálfa mig í fyrsta sæti?"Ef þú ert með spurningu eftir þáttinn, vilt vita meira um námskeiðin eða markþjálfunina sendu á mig línu.Þú finnur mig á instagram:https://www.instagram.com/sundurogsaman/Vefsíðan mín er: https://sundurogsaman.is

Image

Your Title

This is the description area. You can write an introduction or add anything you want to tell your audience. This can help potential listeners better understand and become interested in your podcast. Think about what will motivate them to hit the play button. What is your podcast about? What makes it unique? This is your chance to introduce your podcast and grab their attention.

© 2024 Sundur & Saman

Podcast Powered By Podbean

Version: 20240320